Til hamingju ÉG!!!
Fyrsti skóladagurinn er líka í dag...
Ég ætla líka í fyrsta skiptið að prufa að gera lúðupate í dag...
Já aldeilis viðburðarríkur dagur frammundan eins og þið sjáið, en til þeirra sem málið varðar...
...TAKK fyrir laugardagskvöldið, ég skemmti mér alla vega konunglega með ykkur, vona að þið hafið skemmt ykkur með mér líka
Spurning um að halda bara partý í kvöld líka?
aukablogg fyrir Frú Fanneyju :)
Ætla að byrja á því að segja hvað ég er búin að vera dugleg síðustu daga. Búin að vera ein heima að stússast ýmislegt...breytingar í gangi í litlu íbúðinni okkar skal ég segja ykkur, meira að segja verið að planleggja að henda Krúttmundinum út úr svefnherberginu og í nýtt rúm líka takk fyrir pent...í stóru-stráka-rúm!
ekkert rimla bull lengur fyrir næstum tveggja ára gutta. Eigum bara eftir að finna hið eina rétta rúm fyrir hann...
Ég hef sko ekkert verið að leggja mig á daginn (eins og ég stundaði hér áður fyrr þegar ég var ein heima) heldur fer á fætur með feðgunum og svo beint í einhver verkefni, heimilisstörf eða annað áríðandi! dugleg stelpa *klappábakið*
Ég er farin að borða morgunmat aftur, nú þegar ég hef tíma á morgnana til að setjast niður áður en ég byrja á einhverju. Fyrir valinu verður alltaf Kelloggs Special K...finnst það gott og svo vilja þeir líka halda því fram að maður geti "droppað jeans size in two weeks"... ég fór nú ekki að spá neitt frekar í það hvernig í fjandanum maður ætti að verða svona mjór og flottur á að éta morgunkorn, sem ég hef nú alveg gert og ekki dottið niður um buxnastærð við það á tveimur vikum!!!
Þá ákvað ég að lesa á pakkan á meðan ég borðaði eina skál af þessu...jú viti menn, þar var galdurinn ritaður á pakkann. Það eina sem maður þarf að gera er að borða skál af KSK í morgunmat og svo aftur í hádegismat (eða kvöldmat) og snarla á ávöxtum eða Kelloggs orkustöngum þess á milli!!! Jahá...ég er ekki hissa á að maður grennist eitthvað við það...enda varla nokkur næring sem fæst úr þessu. Væri þá ekki alveg eins hægt að gera þetta með Cheeriosi? get ekki ímyndað mér annað
En svo var ég að uppgötva nokkuð sem heitir Ultratone og er staðsett í Faxafeni...og þaaaaað er sko staður að mínu skapi! ójá, maður leggst á bekk og límir á sig líkamsblöðkur sem gera mann stinnan og mjóan!!! Gerist það öllu betra??? held ekki...ég er nefninlega alltaf á leiðinni í ræktina eins og þið vitið, finnst alls ekkert leiðinlegt að stunda líkamsrækt, en þooooli ekki að sjá engan árangur STRAX...þannig að ég held að það væri kjörið fyrir manneskju eins og mig að fara í ultratone og sjá árangur strax og fara þaðan í ræktina til að viðhalda og betrumbæta...þið skiljið! ![]()
Vá erum við að tala um fullkomið plan eða hvað???
Svo að titill færslunnar komi eitthvað sögunni við...þá langar mig í svona ultratone tíma í afmælisgjöf...kostar ekki nema 22 þúsund eða svo fyrir 10 tíma, hvað er það á milli vina
Nú eða ef allir gestirnir sem koma gæfu 1000 krónur þá er þetta bara komið...hah...búin að redda þessu ![]()
Nei, annars þá vitiði að ég verð voðalega glöð með hvað sem er...verð bara svo glöð á sjá ykkur fallega fólkið koma og gleðjast með mér í tilefni áfangans
eða jú eitt í alvörunni...þá langar mig reyndar í Christina Aguilera ilmvatn
Jæja þvotturinn kallar úr þvottavélinni...vá þetta var langt blogg um ekkert!
Tröllríðandi tölvutækni
Hvað gerir maður eiginlega við þessar síður??? Það virðast allir í heiminum eiga allavega eitt stykki af slíkri síðu, meira að segja leigubílstjórinn okkar í Minneapolis sem kom frá Sjúskabar (eða eitthvað álíka fáránlegu landi sem ég vissi ekki að tilheyrði þessari jörðu) og maður þarf að vera vinur til að geta skoðað sem gerir það að maður þarf sjálfur að eiga svona síðu...
Þetta er of flókið dæmi fyrir einfalda manneskju eins og mig. Ef þið viljið vita hvaða tónlist ég fíla, hversu mörg skópör ég á eða hvað uppáhalds bíómyndin mín heitir er bara sjálfsagt að svara því, til dæmis á msn eða bara í eigin persónu
Já þetta er nú meiri tölvuvitleysan sem geysar hér um...allir haldnir tölvufíkn án þess að vita nokkuð um það. Ein sem var í skólanum með mér skrifaði einmitt BA ritgerð um tölvufíkn þar sem einn viðmælandinn sagðist allt eins geta verið nakinn útí náttúrunni eins og að vera netsambandslaus...!!! Er það tölvufíkn? eða netfíkn? nennir einhver að hanga í tölvu sem er ekki nettengd? Úff ég hefði ekki nennt að skrifa lokaritgerð um þetta...og hvað þá að taka viðtöl við sveitta bólótta tölvunörda sem tala um sjálfa sig nakta í náttúrunni...nó þeink jú verí næs
Jæja, er ekki kominn tími á svefn? held það...ég þarf að hafa orku í að taka til og skreyta fyrir afmælið mitt þið skiljið
eitt blogg í mánuði kemur skapinu í lag...
Vil bara benda á teljarann sem er staðsettur hérna til hliðar...um daginn þegar ég leit á hann voru 200 og eitthvað dagar en núna eru þeir sko ekki svo margir í töttögu og femm ára afmælið mitt, takk fyrir pent...sjæse bara að verða óldí! En fyrsti september kemur upp á mánudegi þetta árið...frekar glatað og auðvitað byrjar skólinn líka þann dag, svo að ég verð aaaaalein í skólanum í nýju skori með nýju fólki sem ég þekki ekkert á afmælisdaginn minn...enginn til að óska mér til hamingju...ömó
Alveg eins og fyrsti fyrsti dagurinn minn í háskólanum þegar við vorum nýflutt hingað suður, Grétar var meira að segja á Eskifirði að vinna svo að ég var aaaaaalein...fram að kvöldmat en þá kom Tobba heim úr vinnunni með pizzu fyrir mig í tilefni dagsins
En þó svo að það komi oft fyrir að skólinn byrji á afmælisdaginn þá er þetta samt flottasti og besti dagurinn...og vil ég því benda Stínu á að lítil meyja þann 01.09.08 væri alveg tilvalin afmælisgjöf
Annars er nú bara allt við hið sama hérna, ég er hætt að vinna, enda algjör sóun á tíma manns að vera að hanga svona endalaust yfir einhverri vinnu...miklu betra að geta stjórnað sínum tíma sjálfur
Jæja nóg komið ætla að fara og sinna húsfrúarverkefnum hérna heima fyrir á meðan gormurinn sefur á sínu græna eftir sundferðina okkar
betra er að blogga ekki en afara sjaldan!
Sumarbústaður og stíflað nef, fullkomin byrjun á sumri
Við fórum upp í bústað síðustu helgi, komin með þörf fyrir að komast lengra upp í sveitina. Pökkuðum niður í snatri og hentumst í bónus að kaupa mat til að taka með og brunuðum svo af stað. Það var reyndar komið framyfir kvöldmat þegar við fórum af stað, en það var allt í lagi, sá stutti sofnaði rétt fyrir utan Mosfellsbæ svo að þetta var allt í góðu...
...Haldiði virkilega að við höfum komist í sumarbústaðarferð svo auðveldlega í einum grænum? Þá þekkiði okkur ekki nógu vel...
Við keyrðum úr bænum, úr Mosfellsbæ upp á Kjalarnes og ég var komin með miðann í göngin í hendurnar þegar...
"*andköf* Grétar, veistu hverju ég er að gleyma!?!...lyklunum af bústaðnum!!!"
Það var tekin ansi kröpp beygja á síðasta afleggjara fyrir göngin!!! Við erum að tala um að við vorum 5 sekúndum frá því að fara ofan í göngin þegar þessi hugsun kom sem elding í hausinn á mér! Sjúff...hefði verið frekar glatað að fara ofan í göngin borga sig upp úr þeim til að fara svo aftur til baka og svo aftur til baka...
Já, sem betur fer vorum við ekki komin lengra en þetta
Vaknaði nokkuð hressari á þriðjudeginum, sem betur fer, enda ekki alveg ég að hringja mig inn veika og hvað þá annan daginn í vinnunni!!! Svo núna í dag var Grétar að safna kvefi og var orðin vel stíflaður um 8 leitið og fór þá með orminn í rúmið og hefur ekki sést síðan...Oh við erum alltaf svo heeeeeppin!
Jæja nóg í bili, þetta er orðið alltof langt, þið eigið hrós skilið ef þið komust í gegnum þetta allt
súpersæs
Ef hún er í oversæs er ég í súpersæs...díses það er ekki í lagi með þessa óeðlilegu líkamsímynd og fyrirmyndir sem gengur og gerist í þessum heimi. Sumar stelpurnar sem taka þátt í þessu eru óhugnanlega mjóar sem er bara ekki kúl...En nóg um það...How to look good naked er hins vegar þáttur að mínu skapi
Amen
hálfvitar með skrúflykil
Ég fór í gær með bílinn minn í "viðgerð" til að láta laga eitthvað helvítis vangefið ískur í honum í ANNAÐ sinn!!! Fór með hann í fyrra að láta laga þetta ískur og borgaði 13þúsund kall fyrir...EKKERT!!! Er alveg að verða biluð á þessu helvítis ískri svo að ég fór með bílinn og kallinn sagði þá að þetta væri að framan (en þeir "löguðu" eitthvað að aftan síðast sem var greinilega alveg óþarft miðað við þessa greinigu hjá kallinum). Svo að ég fór með bílinn, síðan þegar ég mátti koma og sækja hann í hádeginu var búið að rífa ÖLL dekk undan honum...sem mér þótti skrýtið þar sem hann hafði fullyrt að þetta væri að FRAMAN!!! Þá sagði hann mér að það þyrfti að pússa eitthvað og laga bæði að framan og aftan vegna þess að bíllinn væri svo lítið keyrður!
WHAT???
Aha...sagði ég, sem þýðir hvað? Ískrið er vegna þess, og er bæði að framan og aftan...samt aðallega að AFTAN!!! Ég var alveg hætt að skilja og hann talaði með mig í hringi og ég vissi ekkert hvað snéri upp og hvað snéri niður. Og hvað helduru að ég sé að fara að borga fyrir þetta? sagði ég mjög fúl. Ömm að laga allt, bæði að framan og aftan eeeeer...svona í kringum 50þúsund.
50 ÞÚSUND KALL!?! öskraði ég
jebb, svaraði hann, voða rólegur eins og þetta væri lítið mál. Nei sagði ég, ég get ekki staðið í því að borga svo mikið núna, bara ALLS ekki. Þá stakk hann upp á því að ég myndi geyma það að laga að FRAMAN og gera bara við að AFTAN...aftur. Ég var alveg hætt að skilja og sagði í einhverri leiðslu já, gerðu við að aftan. Fyrir það borgaði ég litlar 20 þúsund krónur. Hann lét mig vita að það þyrfti að gera við að framan sem fyrst og það gæti verið að ég yrði vör við eitthvað smá ískur vegna þess. Aha sagði ég óóóógeðslega fúl þegar ég skrifaði undir vísanótuna.
Og hvað? Það sem þurfti að laga var greinilega að FRAMAN EKKI AÐ AFTAN því Það breyttist ekki shitt við þessa helvítis djöfulsins "viðgerð". Ískrið er nákvæmlega eins og áður, ekkert minna, ekkert öðruvísi...NÁKVÆMLEGA eins!!!
Takk fyrir ekkert hálfvitar
ég er á vesturleiðinni...á háheiðinni
En það bjargaðist nú allt saman sem betur fer. Mamma hringdi síðan og lét mig vita af því að við ættum að fara vesturleiðina, það væri öruggara, enda ætluðu allir flutningabílarnir að fara þá leið til baka. Okkur þótti það ráðlegt og drifum okkur af stað um 4 leitið. Ferðin tók aaaaaðeins lengri tíma en við höfðum gert ráð fyrir vegna slæms veðurs og leiðinlegra vega, en við komumst þó alla leið...annað en þeir sem ætluðu yfir Steingrímsfjarðarheiðina, en þeir sátu fastir uppá henni í lengri tíma eða sátu fastir á Hólmavík yfir nótt!
Síðan var haft það gott og gaman fyrir vestan, farið á skrall á vagninum, enda frekar langt síðan maður hefur gert svoleiðis. Það var bara helv...skemmtilegt, ég var nú í svo miklu stuði að ég tók 2 lög með hljómsveit hússins! Síðan var bara vaknað hress og kát næsta dag og smellt sér í fermingarveislu og þaðan í nautakjötsveislu með öllu liðinu á Flateyri. Jájá þetta var allt saman mjög skemmtilegt, en svosem ágætt að vera kominn heim.
Nú er ég bara að reyna að vinna úr smáræðismálum sem kallast að finna sér sumarvinnu...en það virðist ekki ganga alveg nógu vel!!! Er farin að hafa áhyggjur af þessum málum...
Jæja, best að gera eitthvað...
Og múgurinn tryllist
Hvaða læti eru þetta...það er þá eins gott að ég fái komment frá ykkur úr því að þið gerið ekki annað en að rífressa síðuna mína allan daginn...á meðan þið eigið að vera að VINNA!!! sussuss skil ekki hvernig þið haldist í vinnu ![]()
Djóóók
...bara gaman að sjá hvað þið bíðið spennt eftir æsilegu bloggi frá mér. Humm látum okkur nú sjá...
Það er nú svosem lítið að frétta héðan, eða bíddu var ég búin að segja að við erum flutt? Man það ekki, en þið vitið það sjálfsagt...við erum flutt í sveitasæluna og hér er sko allt annað líf. Eini gallinn er suddaleg aukning í bensínkostnað en það kemur reyndar til af því að við fáum ekki leikskólapláss fyrir orminn hérna í hverfinu og þurfum því að taka stóran rúnt á hverjum degi til að koma honum í Englakotið sitt...sem er jú uppí Garðabæ!!! Annars er þetta bara eintóm hamingja. Svaka fín íbúð, fínn garður fyrir litla orma að leika í, heyrist ekki púff frá nágrönnum, það er lyfta í húsinu, ókeypis í sameiginlegar þvottavélar og þurrkara (gott fyrir fólk eins og okkur sem þarf oft að þvo nokkrar vélar á dag!), lítil umferð, hér heyrir maður fuglasöng kvölds og morgna...já ég gæti haldið lengi áfram ![]()
En ástæða bloggleysis er meðal annars flutningar, og svo auðvitað bansett BA ritgerðin
það er nú ljóta vitleysan. Í ferlinu hef ég komist að því að bókasafnið í kennó er fínasta fínt og þar má líka tala saman og svara í síma! Annað en á bókhlöðunni, þar er bannað að anda og þar er líka táfýla! Og einhver önnur lykt líka, enda alltaf fullt af nemendum að bræða úr heilanum allan daginn þar...og svo fara þeir úr skónum og þá bætist táfýlan við! ííjú Ég verð ógisslega glöð eftir helgi þegar ég hef skilað ritgerðinni á skrifstofu félagsvísindadeildar Háskóla Íslands...takk og bææææææ. Þá nenni ég ekki meiru skólastússi lengi lengi...alveg þangað til í haust
þá er ég búin að skrá mig í íslensku. Sjáum hvernig það fer...en ég er spennt fyrir því, reyndar leiðinlegt að hafa engan sem maður þekkir með sér...einhver sem býður sig fram sem hjálparhækju í eitt ár? sendið inn umsóknir, öllum umsóknum verður svarað ![]()
Svo er auðvitað aðalið...ég á nýtt HJÓL
og Daði Snær á stól aftaná því
Haldið að það sé, núna verður sko bílnum bara lagt og við hjólum um allt...eða svona næstum því! Við tókum hjólatúr í dag og hann sat voðalega ánægður í stólnum með nýja hjálminn og veifaði pabba sínum sem fylgdist með af svölunum í glaða sólskini í dag. Já gott fólk þetta er sko lífið...
Og svo annað aðal...við erum búin að ákveða (þrátt fyrir svívirðilegt bensínverð) að keyra vestur næstu helgi og eyða löngu helginni í faðmi fjölskyldunnar og fjallanna. Okkur er líka boðið í fermingu þann 11. svo að það er tilvalin ástæða að skella sér aðeins vestur. Fyndið að það skuli vera 11. því þá eru nákvæmlega ömmm...11 ár síðan ég fermdist!!!
Jæja þetta er orðið allt of langt, efast um að þið nennið að lesa þetta allt...en þið VERÐIÐ, þið báðuð um þetta!!!
