Ađalvalmynd

25 ára afmćliđ mitt

Auglýsing

Könnun

Vodka í Burn eđa Mojito?

Innskráningar kubbur

betra er ađ blogga ekki en afara sjaldan!

28. júlí 2008 klukkan 16:37
Já gott fólk, titill þessarar færslu er tileinkað hinum heittelskaða sem kommentaði af svo mikilli snilld hér í fyrradag... :)  Þori ekki að fullyrða en grunar sterklega að hann hafi verið undir áhrifum einhvers áfengis þegar hann ritaði þessi góðu orð...en það er nú bara minn grunur! ;)

Sjálf var ég á góðu djammi þá líka...tók þátt í svakalegustu gæsun ársins hjá tilvonandi FRÚ Fanneyju :)  jájá og það var sko gott djamm krakkar mínir...misjafnlega góður árangur hjá liðinu í heild en við vorum þarna 5 sem eftirlifðum og stauluðumst í rúmið rúmlega 4 um nóttina.  Ég vaknaði svo hress og kát klukkan hálf átta takk fyrir pent og gat bara ekki með nokkru móti sofnað aftur svo að ég beið bara þar til einhverjar fleiri opnuðu augun og þá fórum við bara í það að taka til eftir kvöldið áður!  Jájá hvað er betra eftir gott djamm en að vakna eftir 3 tíma svefn og fara að taka til bjórdósir og tómar vínflöskur :)

En þetta var þrusugaman allt saman

Nú Krúttmundurinn okkar er að heiman þessa vikuna.  Fór vestur til mömmu og pabba á föstudaginn og fór með þeim í helgarferð til Tálknafjarðar, er reyndar á leiðinni aftur heim á Ísafjörð í þessum skrifuðu orðum og verður þar hjá þeim fram á föstudag, en þá förum við vestur og ætlum að vera þar yfir verslunarmannahelgina.  Þar verður sjálfsagt og vonandi tekið svona eins og eitt djamm, því ég veit að Fanney (sem ætlar líka að fara vestur) vill eeeeeendilega fá að troða upp með hljómsveit á balli þar :) enda orðin söngdrottning fjölskyldunnar eins og hún sagði sjálf hátt og stolt :) svo að ég ætla rétt að vona að það verði ball á Vagninum og að sem flestir sjái sér fært að mæta þangað og sjá söngdrottninguna með eigin augum!!! :)

Nú og svo auðvitað að sjá líka bræðurna Grétar og Auðunn taka á honum stóra sínum í Mýrarboltamóti á laugardaginn! :)

Já gott fólk eintóm hamingja og tilhlökkun hér á bæ
 
Dagný Sverris
Mannst að þú ert að koma inn í Vigur á sunnudaginn :) Afi þinn ætlar að skutla þér hehe
#1
31. júlí 2008 klukkan 12:43
 
Fanney
Hehe - ég man ekki eftir að hafa látið þessi orð falla. Það hefur þá verið gert í miklu ölæði og auðvitað bara bull - því eins og allir vita ert þú SÖNGDROTTNINGIN!!!
#2
31. júlí 2008 klukkan 21:46

Skrifa athugasemd

Hver er...

  • Nafn: Róslaug Guđrún Agnarsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Háskólanemi
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ međ kalli og barni
  • Um mig: Ísfirđingur búsettur í borg óttans

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...