aukablogg fyrir Frú Fanneyju :)
Ætla að byrja á því að segja hvað ég er búin að vera dugleg síðustu daga. Búin að vera ein heima að stússast ýmislegt...breytingar í gangi í litlu íbúðinni okkar skal ég segja ykkur, meira að segja verið að planleggja að henda Krúttmundinum út úr svefnherberginu og í nýtt rúm líka takk fyrir pent...í stóru-stráka-rúm!
ekkert rimla bull lengur fyrir næstum tveggja ára gutta. Eigum bara eftir að finna hið eina rétta rúm fyrir hann...
Ég hef sko ekkert verið að leggja mig á daginn (eins og ég stundaði hér áður fyrr þegar ég var ein heima) heldur fer á fætur með feðgunum og svo beint í einhver verkefni, heimilisstörf eða annað áríðandi! dugleg stelpa *klappábakið*
Ég er farin að borða morgunmat aftur, nú þegar ég hef tíma á morgnana til að setjast niður áður en ég byrja á einhverju. Fyrir valinu verður alltaf Kelloggs Special K...finnst það gott og svo vilja þeir líka halda því fram að maður geti "droppað jeans size in two weeks"... ég fór nú ekki að spá neitt frekar í það hvernig í fjandanum maður ætti að verða svona mjór og flottur á að éta morgunkorn, sem ég hef nú alveg gert og ekki dottið niður um buxnastærð við það á tveimur vikum!!!
Þá ákvað ég að lesa á pakkan á meðan ég borðaði eina skál af þessu...jú viti menn, þar var galdurinn ritaður á pakkann. Það eina sem maður þarf að gera er að borða skál af KSK í morgunmat og svo aftur í hádegismat (eða kvöldmat) og snarla á ávöxtum eða Kelloggs orkustöngum þess á milli!!! Jahá...ég er ekki hissa á að maður grennist eitthvað við það...enda varla nokkur næring sem fæst úr þessu. Væri þá ekki alveg eins hægt að gera þetta með Cheeriosi? get ekki ímyndað mér annað
En svo var ég að uppgötva nokkuð sem heitir Ultratone og er staðsett í Faxafeni...og þaaaaað er sko staður að mínu skapi! ójá, maður leggst á bekk og límir á sig líkamsblöðkur sem gera mann stinnan og mjóan!!! Gerist það öllu betra??? held ekki...ég er nefninlega alltaf á leiðinni í ræktina eins og þið vitið, finnst alls ekkert leiðinlegt að stunda líkamsrækt, en þooooli ekki að sjá engan árangur STRAX...þannig að ég held að það væri kjörið fyrir manneskju eins og mig að fara í ultratone og sjá árangur strax og fara þaðan í ræktina til að viðhalda og betrumbæta...þið skiljið! ![]()
Vá erum við að tala um fullkomið plan eða hvað???
Svo að titill færslunnar komi eitthvað sögunni við...þá langar mig í svona ultratone tíma í afmælisgjöf...kostar ekki nema 22 þúsund eða svo fyrir 10 tíma, hvað er það á milli vina
Nú eða ef allir gestirnir sem koma gæfu 1000 krónur þá er þetta bara komið...hah...búin að redda þessu ![]()
Nei, annars þá vitiði að ég verð voðalega glöð með hvað sem er...verð bara svo glöð á sjá ykkur fallega fólkið koma og gleðjast með mér í tilefni áfangans
eða jú eitt í alvörunni...þá langar mig reyndar í Christina Aguilera ilmvatn
Jæja þvotturinn kallar úr þvottavélinni...vá þetta var langt blogg um ekkert!
Ég er farin að hlakka til tjúttsins Á helginni ... en að öðru er Smári kominn með tjellingu
:)
Ætla snemma í bælið svo ég verði ekki þreytt á tjúttinu á morgun ... orðin geggjað spennt :)
Komin með pössun fyrir krílin og alles
Svo eiga allir að koma með einn leik, þið vitið það!!! og pakkaleikurinn er frátekinn sko svo að þið þurfið að finna einhvern annan...
:)
...
...
...
ég fór í þetta og þetta er RAFMAGN sem er látið fara í gegnum spikið og þetta er VONT!!! Ég kveð fyrir þessum tímum :þ
og svo fullvissa þau mig um að ef ég mæti í þetta þá mun ég grennast... en aðeins ef ég drekk fullt af vatni með, borða hollt og mæti í ræktina á hverjum degi... hmmm.....
ég grenntist ekkert en fékk dofinn maga :)
mæli s.s ekki með þessu ;)
en að öðru, þá er svo langt síðan ég hef séð þig að ég man varla hvernig þú lítur út! Og er samt búin að skoða myndirnar hjá Lilla Róslaugi Jr.
og í sambandi við færsluna á undan þá verðuru að gefa Facebook smá séns - það er ýkt skemmtó :D
Vonandi verður heilsan góð á morgun ...
