Ađalvalmynd

25 ára afmćliđ mitt

Auglýsing

Könnun

Vodka í Burn eđa Mojito?

Innskráningar kubbur

Afmćli

15. október 2007 klukkan 09:14
Í dag er 15. október.  
Þá eiga margir afmæli...og margir þeirra eru frá Flateyri meira að segja...
Einn Flateyringanna sem á afmæli í dag er hann Grétar Örn! :)

Já, hann Grétar á afmæli! Þegar hann vaknaði í morgun var hann orðinn einu árinu eldri en hann var í gær þegar hann fór að sofa...ágætis árangur það.

En við erum að spá í að bjóða útvöldum í kökur næstu helgi, þá held ég líka að foreldrarnir (hans sko) verði hérna í bænum, svo að það er alveg tilvalið.

Ég gat ekki sett inn neina afmælismynd...skil ekki þennann makka...vill aldrei gera neitt skemmtilegt!!!

Pink

12. október 2007 klukkan 14:05
Mig langar í nýja tölvu...
Mig langar í þessa tölvu...dellHún er bara svo bleik og falleg.  Alveg akkurat fyrir mig!  Svo vantar mig bara bleikan samlokusíma og þá er ég gúdd tú gó sko!

Tölvan mín blessaða er ekki alveg að gera sig þessa dagana.  Fékk næstum því magasár í gær við að reyna að tjónka við hana...er orðin frekar hrædd við að geyma ritgerðir og annað slíkt í henni...hún gæti tekið upp á því að hætta að virka og gefið upp öndina, og þar með tekið öll verkefni og annað með sér!

Þarf eitthvað að fara að skoða þessi mál...verst að maður þarf að eiga peninga til að eignast svona hluti...þá á ég ekki!

Afmćli

09. október 2007 klukkan 10:49


Hún Gulla...a.k.a. amman á Grundarstígnum á afmæli í dag! Hlæjandi sendum henni kossa og knús í tilefni dagsins

Spádómskrafturinn

07. október 2007 klukkan 20:33
Við fórum í skírn í dag.  Held ég hafi aldrei farið í jafn langa messu...þurftum að stinga af með barnið eftir klukkutíma og korter, en þá var hún enn í gangi!  Daði Snær hafði ekki þolinmæði í meira.  Fínasta messa þó og hress prestur (presta...var kvenkyns prestur, afhverju er það þá ekki presta?)

Ég hló, þó mest innan í mér af kurteisi við aðra kirkjugesti, þegar nafn barnsins var sagt.  Salvar Óli  jah hvur fjand...úpsí  má sennilegast ekki segja svona í kirkju, en mér var örugglega fyrirgefið, því ég fór með trúarjátninguna tvisvar og faðirvorið tvisvar og svo var maður við hlið mér sem sagði "friður sé með yður" og presturinn sagði það vera fyrirgefningu synda, svo að mér var örugglega fyrirgefið þetta ljóta orðbragð sem hrökk útúr mér!!!

En kannski til að útskýra...þá voru semsagt Dagný og Snorri að láta skíra litla kút og vill svo skemmtilega til að ég var búin að tilkynna þeim það, meira að segja á barnalandssíðunni þeirra, (getið séð heimildir þar í vefdagbókinni) að þetta barn væri Salvar Óli í mínum hug þar til annað væri tilkynnt!  Svo fékk hann bara það nafn...og Dagnýju meira að segja tókst með eindæmum vel að halda andliti á meðan ég blaðraði um það í lengri tíma í heimsókn hjá henni um daginn, að mér fyndist að hann ætti að heita Salvar Óli...var reyndar ekki viss afhverju ég hefði klínt Óla nafninu þarna aftan á Salvars nafnið...sem er frá afanum, en gaf engu að síður í skyn að mér fyndist það eiga heima þar! :)  

Gaman að þessu...
Svo nú get ég sofið róleg vitandi að nú heitir barnið Salvar Óli...fyrir Guði og mönnum! :)

Amen

Illt í hjartanu

06. október 2007 klukkan 22:43
úff...bloggandinn hefur ekki verið á meðal vor síðustu dagana...og eiginlega enginn annar andi heldur, hef bara verið hálf andlaus síðustu daga.  Spurning hvort að skammdegisþunglyndi sé að gera vart við sig...?

Í dag var Dr.Phil syrpa á skjá einum.  Ég var að tína óhrein föt af gólfinu og henda inn í þvottavélina þegar mér verður litið á sjónvarpið og sé feitar konur gráta yfir því að þær séu of feitar til að gifta sig...komast ekki í kjólana sem þær langar til að klæðast og ég veit ekki hvað og hvað...
Allt í einu er Dr. Phil orðinn sálgreinandi næringarsérfræðingur og einkaþjálfari, því hann lofaði þessum konum að þær skyldu verða mjórri og hamingjusamari fyrir brúðkaupið, með hans hjálp myndi það ganga!  

Það var reyndar annar þáttur sem lét mér líða illa í hjartanu.  Þáttur þar sem hjón komu.  Þessi hjón áttu dóttur, sem tókst erfiðlega að eignast svo að þau ákváðu að ættleiða annað barn.  Þau fengu ættleiddan son, en svo þegar hann kom til þeirra var konan bara ólétt og gengin 5 mánuði eða svo.  Svo nú vilja þau ekki strákinn!  Hugsa daglega um að skila honum bara aftur...segja við hann að það hafi verið mistök að ættleiða hann, að hann sé bjáni og þau elski hann ekki!!!  Svo er hann litla greyið með einhverja vöðvafötlun svo að hann þarf aðeins meiri umönnun en "venjuleg" börn og þau segja hann bara of erfiðann.  Þarf miklu meiri athygli og umönnun en stelpurnar þeirra, og þau hafi nú ekki pantað barn með fötlun!!!
Jahérna hér...en fólk sem eignast fatlað barn? Pantaði það að fá fatlað barn? Ekki fer það fólk á fæðingardeildina með barnið og vill skila því afþví að það er gallað eintak! 

Það sem mér fannst samt merkilegast var...afhverju er ekki búið að taka barnið af þeim!  Það eru góðar líkur á að barnið sé vanrækt í vörslu fólks sem hugsar svona...afhverju er fólkið í sjónvarpinu hjá Dr. Phil?  Afhverju er barnaverndarnefnd ekki búin að gera eitthvað?

Ég bara stend á gati...skil ekki svona...

Sé ekki alveg fyrir mér að svona gerðist hér á landi...þátt með Sirrý þar sem svona fólk kæmi og segði svona sögu!

Nei, ég skil ekki svona

Ţekkiđi forsetann?

19. september 2007 klukkan 21:16

Ég get svo svarið það...það er ekki í lagi með þessa nágranna hérna!!!  Ekki nóg með það að ég hafi tileinkað þeim heila færslu hérna fyrir nokkrum dögum, þá er eins og manni sé bara ögrað...með gítarspili og óóóó maaaaríaaaaaa (söngkeppni framhaldsskólanna útgáfa) klukkan hálf eitt í nótt!!!  Yndislegt alveg


*púst*

Ahh...allavega, þá var Kallý að segja mér að hún hafi verið í ísfirðingapartýi á síðustu helgi!  Jájá, Fiffi og frú (sem btw er vinkona hennar Kallýar Hissa...já heimur minnkandi fer) voru semsagt með kveðju partý því þau eru að flytja út.  Og þar var auðvitað fullt af ísfirðingum...gleymdi reyndar að spurja hana með hvaða fólki, en það vill til að ég veit að hún er einstaklega óminnug á nöfn, svo að ég er ekkert að gera mér neitt mjög miklar vonir Glottandi
En, hún var allavega að tala við einhvern og nafn mitt barst í tal, sem vakti athygli nokkura partýgesta og var hún því spurð hvort og hvernig hún þekkti mig.  "Já, ég er með henni í uppeldis og menntunarfræði" svarar hún, þekkiði hana?  H-JÁ! (já með smá h hljómi á undan, svipar eiginlega svolítið til "játs") svona eins og væri verið að spurja hvort að fólk þekkti forsetann!!! Svalur (ath þetta með forsetann eru hennar eigin orð...annað í þessari sögu gæti þó verið lítillega breytt!)

"Fyrr má nú vera", sagði ég nú bara þegar hún sagði mér frá þessu...maður væntir þess nú að fólk frá ísafirði, á svipuðum aldri og maður sjálfur, viti hver maður er, og ég tala nú ekki um þegar maður ber svo einstaklega sérstakt og sjaldgæft nafn! Ullandi

Já, ég og Fiffi tókum nú nokkrar tískusýningarnar saman á yngri árum, sýndum stórglæsilegan fatnað frá legg og skel...á meira að segja eina mynd af okkur saman, ég með geggjaðar krullur og hann með risa gleraugu...gúd tæms
 
Einíveis...vísindaferð, matarboð, foreldrar í bænum og ýmislegt skemmtilegt framundan á næstu helgi

Er farin að borða kleinur og heitt kakó  

Nemendagarđar

16. september 2007 klukkan 15:51
Arg...ég er ekki hress í dag!  Eiginlega bara algjör andstæða við hress...mjög óhress! 

Vitið þið hvað einkennir nemendagarða?
Jú, mikið rétt...þar búa bara nemendur!

En vitið þið hvað einkennir nemendur?
aha...djamm og drykkja!

Og hvar stunda nemendur svoleiðis?
Í nemendaíbúðunum sínum, með fullt af öðrum nemendum í mjög svo háværum partýum!!! 

Við erum gjörsamlega umkringd tillitslausustu nemendum sem fyrir finnast á jarðríki!  Þessa helgina var partý hérna við hliðiná, það var byrjað að tínast út fólk svona korter yfir tvö í nótt...og var að í svona 45 mínútur!  Og það besta við þetta er að svefnherbergisglugginn okkar er alveg við útidyrnar og því var eins og þessir blessuðu partýgestir væru bara inni í herberginu hjá okkur...FRÁBÆRT alveg!  

Og þvílík öskur, getur fólk ekki bara talað venjulega saman, afhverju þarf að öskra?  Verður maður fyrir einhverjum heyrnarskaða eftir smá drykkju?  Ég hef bara ekki orðið vör við það sjálf...og skelfilegur söngur sem fylgdi, svona fólk ætti bara ekki að opna munn...ekki einu sinni til að tala!

Ég fór reyndar í eitt skiptið út á pallinn og bað strákana sem þar stóðu að reykja, að vinsamlegast fara á svalirnar sem tilheyra partý-íbúðinni, því að við værum með sofandi barn fyrir innan gluggann sem þeir stóðu við!  

Þannig að ég var ekki sofnuð fyrr en rúmlega 3 þegar allir voru farnir...og svo var vaknað eldsnemma með barnið sem vaknar jú alltaf svo snemma!  

Sko, ég er ekkert á móti partýum...hef farið í mörg og haldið mörg...en þegar maður býr í fjölbýli, er allt í lagi að taka tillit til þess og ekki vera með dúndrandi partý langt fram eftir morgni!

Hvað skal gjöra hvað skal gjöra...flytja? kvarta? kveikja í? 

Prinsinn af Grafarvogi

10. september 2007 klukkan 09:04
strákur

Drengur er fæddur, 9.september kl. 17.04.  4135gr og 54cm  Hlæjandi  Loksins er hann kominn, Dagnýjar og Snorrasonur...og ég get ekki beðið eftir að fara og knúsa hann!  Fleiri fréttir seinna...

Mér finnst rigningin góđ

09. september 2007 klukkan 14:54
Óvissuferðin er búin!  Landsleikurinn er búinn!  Helgin er líka búin...

Óvissuferðin var bara hin fínasta.  Ratleikur í hljómskálagarðinum, rigningin var auðvitað til staðar eins og hún hefur verið síðustu vikurnar!  Við vorum reyndar búin með ratleikinn allt of snemma miðað við áætlun skemmtinefndar svo að við þurftum að bíða, í rigningunni, í klukkutíma...og svo seinkaði líka rútunni svo að við stóðum köld og blaut í einn og hálfan tíma!!!  En engum var nú meint af...held ég!  Svo var haldið í sal í Hafnarfirði og setið þar að sumbli og nartað í brauð og salöt, farið í leiki, spilað á gítar og sungið.  Ég reyndar yfirgaf teitið rétt fyrir miðnætti og plataði Tinnu Hrund og Rut til að ná í mig og skutla mér heim.  

Svo var landsleikurinn Ísland-Spánn í gærkvöldi.  Mikið gaman þar.  Fórum á Ölver og vorum þar regnhlífarí einhvern rúman klukkutíma áður en við marseruðum niður á laugardalsvöll.  Það var auðvitað rigning...og engin venjuleg rigning, gjörsamlega eins og hellt úr fötu.  En ég var nú svo sniðug að ég var með tvær regnhlífar í töskunni  svo að ég hafði eina og Tinna fékk hina.  Þær voru sko ekkert lítið vinsælar á leiðinni.  Maður var bara góður á röltinu innan um fjölda fólks, svo bara allt í einu var einhver ókunnugur kominn undir regnhlífina hjá manni!  En það var bara stemmari í því, sungum saman stuðningssöngva og svona! Hlæjandi 

Og já, ef það hefur farið framhjá einhverjum sem horfði á leikinn...þá var Grétar á honum líka! Glottandi

Ó-Vissu-Ferđ

07. september 2007 klukkan 12:11

Ú spennó spennó...óvissuferð í uppsiglingu!  áttirHvert ferðinni er heitið, er ekki gott að segja.  Enda er þetta óvssuferð!!!  En ég veit það að ég á að mæta í hljómskálagarðinn kl.fimm og ég veit það líka að ég á að vera í einhverju GRÆNU!  hmm...eitthvað er úrvalið af grænum fatalörfum í skápnum hjá mér lítið.  Skyldi Turkis-litur flokkast sem grænn?  Eða blágrænn? Grænblár?  Úff þetta er nú meira...


En skemmtileg tilviljun að tvær yngismeyjar að vestan séu komnar í hóp uppeldis og menntunarfræðinema!  Hugsið ykkur bara hvernig vestfirðir verða í framtíðinni...með allt þetta uppeldisfræðimenntaða fólk.  Þetta verður hrein paradís...PARADÍS segi ég!  Engir snarvitlausir sjálfala villingar!

En hvað um það...stykkorð fyrir kvöldið í kvöld:  Áfengi - Gulur - Áfengi - Rauður - Áfengi - Grænn - Gaman - uppeldi? nehh ekki svo mikið...Hlæjandi


Hver er...

  • Nafn: Róslaug Guđrún Agnarsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Háskólanemi
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ međ kalli og barni
  • Um mig: Ísfirđingur búsettur í borg óttans

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...