Litlir kassar...
Svo vil ég benda ykkur á að taka þátt í gífurlega skemmtilegri könnun hjá henni Gógó
Ekki veit ég hvernig í óspökunum henni datt í hug að kanna þetta, en skemmtilegt engu að síður
Syngjandi sćll og građur...
Eitt sem á það til að fara í taugarnar á mér, en það er fólkið sem syngur vitlausa texta! Sjálf hef ég sérstakt yndi af því að syngja vitlausan texta fyrir hann Grétar minn og geri það í tíma og ótíma...Ég sem líka stundum alveg nýja texta við lögin á meðan ég syng fyrir hann og þá fjallar textinn auðvitað í 99% tilvika á einhvern hátt um hann! Já ég er bara svo fyndin!
Sjálfur á hann sín móment og á það til að skilja ekki alveg hvað í fjandanum söngvararnir eru að segja...
t.d. skildi hann aldrei textann "er ég kem heim í búðardal...þar mun verða veislunni margt í". (sem er borði framm veislunni martí)...hvað í fjandanum er eiginlega þetta martí? spurði hann!!! Síðan þá tölum við oft um að fara í veislumartí!
Eins með hana "Ómaríu"
"Í kvöld við skulum skaut'útá ísinn og skeríann bér úr spér"...ég hélt að ég myndi pissa á mig þegar hann var að vandræðast með þennan texta. Þetta er Bubba-lag og textarnir hans auðvitað misjafnir og misjafnlega innihaldsríkir eins og við vitum
Hér eru dæmi um skemmtilega vitlausa texta:
-Every time you go away, you take a piece of meat with you!
-Þetta aðfangadagskvöld, fyrsta aðfangadagskvöld var eldvarnarhátíðin mest, trallallala...
-Ég þekki þig og þína langömmu...
-Ég fór í daginn í dag og fékk mér varadekk...
-Fjórir kátir prestar sátu saman á kvist...
Já, gott fólk það er ekki öll vitleysan eins!
Ţunglyndi
Hugsanir á laugardagskvöldi...
Er alltaf að hugsa hvað mig langar að gera, hvert ég er að stefna...virðist alltaf lenda í einhverri hringavitleysu! Veit ekki hvað mig langar, en ég veit bara að mig langar að gera eitthvað skemmtilegt og eitthvað sem ég hef áhuga á...enda finnst mér það, þ.e áhuginn, alveg vera grunnurinn fyrir því að gera eitthvað skemmtilegt!
Og hvar liggur áhuginn?

Held að ég opni bara skóbúð þar þarf ég allavega ekki að hafa áhyggjur af því að vera áhugalaus
Hversu mörg prósent fólks ætli vinni við það sem það ætlaði...eða finnst virkilega skemmtilegt?
Hvernig í óspökunum lennti ég á braut uppeldisfræðinnar? Mig sem langar bara til að vinna í skemmtilegri og góðri vinnu þar sem ég get verið pæja í fínum fötum og skóm allan daginn!
Ahh...nóg komið af hugsunum þetta laugardagskvöldið
Fávitafćlur á tilbođsverđi!
-Fávitafælur, Nornabúðin punktur is!!!-
Vodd! Fávitafælur? ég var nú alveg viss um að ég hefði heyrt eitthvað vitlaust, en neinei FÁVITAFÆLUR eru það víst...
Já, spurning um að fjárfesta í nokkrum svoleiðis og hengja á sig og setja hér á útihurðina og á fleiri staði og svæla fávita í burtu
Ć em só bjútífol tú mííí...
Eruði búin að sjá nýja lúkkið hérna fyrir ofan? Er það bjútífúl eða bjútífúl?
Já, hann Grétar var að laga fyrir mig...hitt var ekki nógu flott...of einfalt eitthvað!
En núna...váví...þið þurfið að gera langa leit að öðru eins!
Á morgun fer ég upp í bústað...aftur að ljúka við verkið sem hafið var fyrir 2 vikum þegar ég í fólsku minni óð út í vatnslausa ánna og braut næstum á mér fótinn! Núna ætla ég ekki að koma nálægt ánni...bara fara í pottinn og vera þar!
Vona að það verði klikkað veður akkurat þarna í kringum bústaðinn svo að ég geti fengið smá brúnku í pottinum...það er bara sanngjarnt!!!
Ég meina, ég kemst ekkert til útlanda þetta sumarið! Og síðustu tvö sumur sem ég hef farið út þá var rigning þar allan tímann!!! Hversu lengi getur ein manneskja verið án sólar? Þetta hlýtur að fara að hafa áhrif á vítamínupptöku líkamans og sálartetrið...or somþíng!
Jæja, kem aftur til baka á "hæ hó jibbi jei og jibbííí jei, það er kominn 17. júní!" Sjáumst þá í sólinni niðrí bæ
Beauty and the...?
Myndarlegasta parið í bænum? Ég held það nú...og þó víðar væri leitað! 

Langi Mangi langa...
Mig langar svo...
...að fara til sólarlanda
...að vera búin með BA gráðuna
...að vera að vinna í ógeðslega skemmtilegri og vel launaðari vinnu
...að kaupa mér íbúð
...að fara í Kringluna og kaupa mér allt það sem mig langar í og fá ekkert samviskubit
...að fá 0 kr VISA-reikning næstu mánaðarmót
úff það er allt of mikið sem mann langar!!!
Skyldi vera einhverntíman hægt að langa ekki neitt? hugs hugs
Jú eitt í viðbót sem mig langar...að fara á klikkað djamm...og þetta djamm á helst að innihalda Dagnýju og áfengi líka
Fyndið með okkur...virðumst aldrei ætla að komast á djamm saman, erum "alltaf" óléttar til skiptis
hahahahaha. Erum búnar að plana síðustu þrjá páska að fara saman á páskadjamm...en ótrúlegt en satt hefur síðustu 3 ár á páskum önnur hvort okkar "alltaf" verið ólétt!!! Legg ekki í það að plana páskadjamm með henni næsta ár...því þá væri röðin komin að mér og ég nenni ekki að koma með annan púka strax!
Hvað langar þig?
Kauphlaup

Þetta eru nýjustu skórnir í flotanum
og takið sérstaklega vel eftir þessum æðisgengnu hælum...
Jájá ég fjárfesti í þessum fyrir 3 dögum eða svo. Agnes Lára er hjá okkur núna og er ég hennar einka sjóför og ek henni þvers og kruss um borgina í leit að hinum fullkomnu buxum. Ég er farin að hafa áhyggjur af þessari leit, því ef hún fer ekki að fjárfesta í eitthverju MJÖG fljótlega er ég ansi hrædd um að kortið mitt fái að straujast í einhverri búðinni!!!
Ég er BARA búin að finna mér bol, buxur og annað skópar sem bíða grenjandi og hrópandi í búðunum, bíðandi og vonandi eftir því að ég komi og fresli þau!!!
Já, ég skildi aldrei hvað Grétar var að væla yfir því að ég þarf oft að "spá aðeins í þetta" og "athuga hvort að þetta er til ódýrara í annari búð" ... jedúdda frúdda...Agnes Lára er alveg eins og ég...nei VERRI...mátar og mátar, skoðar og spáir en kaupir ekkert!!! Og það sem "verst" er...ég held áfram að finna mér eitthvað sem ég bara verð að eignast í þessu búðarrápi!!!
Já, gott fólk ég er hrædd um að það líði ekki á löngu þar til þið fáið nýjar myndir af einhverju sem ég hef fjárfest í þessari leit hennar Agnesar að hinum fullkomnu buxum! Amen
Fly on the wings of...
Þetta ÓGEÐ gerði stærstu mistök lífs síns þegar það hætti sér inn í stofugluggann hjá mér!!! Hvað er málið með þessi kvikyndi, þetta eru orðin svo óeðlilega stökkbreytt helv... að þetta er á stærð við fugla! Það sést reyndar því miður ekki á þessari mynd hvað hún er í rauninni stór, en þið getið alveg trúað mér þegar ég segi að hún var STÓR! *HROLLUR* Ég veit ekki alveg hvort okkar er með meiri fóbíu fyrir svona ógeðum, ég eða Grétar, en hann sá allavega mestmegnis um pyntingarnar í þetta skiptið. Ýmsar tilraunir voru gerðar og endaði hún lífið sem klaki, eða frosin inni í klaka...
margt verra en það svosem
Oh so true...
Ég var úti að labba með 4 ára dóttur minni. Hún tók eitthvað upp úr götunni og ætlaði að setja það upp í sig. Ég tók hlutinn af henni og sagði henni að gera þetta ekki.
"Afhverju ekki?" spurði hún.
"Afþví að þetta er búið að liggja á götunni, þú veist ekkert hvar þetta hefur verið og það eru örugglega sýklar á þessu" svaraði ég.
Dóttir mín horfði aðdáunaraugum á mig og spurði: "Hvernig veistu allt svona mamma? Þú ert svo klár."
Ég var fljót að hugsa, og sagði: "allar mömmur vita svona hluti. Það er á mömmuprófinu. Maður verður að vita það, annars fær maður ekki að vera mamma."
Við löbbuðum áfram í þögn í svona 2-3 mínútur, en hún var greinilega að íhuga þessar nýju upplýsingar.
"Ó, ég skil!" sagði hún síðan, þannig að ef maður nær ekki prófinu þarf maður að vera pabbinn."
"Einmitt", svaraði ég glottandi!
Ó ţiđ skór...
Talandi um skó...þá var ég á veraldarvefsflakki, eins og svo oft áður, enda óeðlilega mikill tími sem ég hef aflögu þessa dagana, en þar fann ég þetta:
mjög kynferðislega í eðli sínu. Hællinn og táin eru táknrænir fyrir getnaðarlim mannsins en skórinn að innanverðu tákn fyrir sköp kvenna. En þeir höfðu annað notagildi. Með tánni veittist þeim hægðarleikur að smokra henni undir pilsfald kvenfólksins og sér í lagi þegar konan sat andspænis þeim. Þannig gátu þeir kitlað kvensuna enda vel til fallið í pörunarleik kynjanna.
Jahá, þetta vissuð þið ekki...og reyndar ekki ég heldur. En það er greinilega alltaf sama sagan með þessa karlmenn...þeir breytast víst seint, dónakallar!
Vá, núna langar mig að fara og kaupa mér nýja skó...finnst ég alveg eiga það skilið, hef ekki keypt mér nýja skó síðan síðast
