astrartertu-gubb
27. febrúar 2008 klukkan 21:21
Úff...talandi um verknað djöfulsins, þá er fátt verra en að fá helv...ælupestina!!!
Ég get svo svarið það, ælupestirnar sem ég næ mér í eru verri en barnsfæðingar!!! Ekki nóg með endalausa ógleði og ólgu, þá fæ ég nístandi verk í magann sem er bara þar...stanslaust! Eins og að vera með múrstein í maganum...alveg ó-geð-slegt!
Ég er sumsé að stíga úr ælupest eins og þið kannski glögglega sjáið. Steinlá í gær, er nú öll að koma til í dag, búin að borða alveg tvær brauðsneiðar og drekka 1/2 líter af kóki eða svo! Sem er nú töluvert meira en fór niður í gær, en það var nú bara vatn sem kom alltaf upp aftur ásamt galli...enda ekkert annað eftir til að skila!!! algjört æði...
Svo svitnaði maður, táraðist og skalf eins og hrísla við hverja klósett heimsóknina og óskaði þess að maður ætti svona eins og einn pakka af morfíni í lyfjaskápnum hjá sér!
Ég gæti haldið lengi áfram að væla...ætla samt ekki að gera það núna, geymi það til betri tíma!
Já, þetta er nú ljóta pestin og óska ég engum að verða fyrir þessum vítiskvölum...því eins og ég sagði hér um daginn þá kýs ég nú frekar flensuna en þetta helvíti!

sól og skíđi
21. febrúar 2008 klukkan 21:14
Ohh...mig langar svo til útlanda!!! Gleymdi mér aðeins á netinu um daginn og get svo svarið það að ég var hársbreidd frá því að panta tveggja vikna ferð til Costa del sol í september. Sé fyrir mér í hyllingum að halda upp á 25 ára afmælið í sól og hita mmmmmm...einhver sem vill koma með? 
Mamma og pabbi eru núna í þessum skrifuðu orðum úti í Austurríki, þar sem þau eru búin að skíða af sér lappirnar í viku!!! Ohhh...ég er alveg græn af öfund!
Skil ekki í þeim að fara svona án mín! Og svo til að bæta gráu ofan á svart þá hringdi mamma í mig, ofan úr brekku, þar sem hún sat á sólstól...í glampandi sól á leiðinni að fá sér að borða í einhverjum fjalla-veitinga-skálanum þarna! Talandi um að nudda salti í sárin...
Hún sagði við mig að við hefðu örugglega mjög gaman af því að komast þangað, í svona ferð að renna okkur á brettum þarna í brekkunum. Ég sagði...ööööö JÁ!!! Og hef ákveðið að fara strax í það um leið og þau lenda hér á klakanum að sannfæra þau um að fara með okkur í svona skíðaferð...sem fyrst takk!
Jæja...ætla að fara og halda áfram að láta mig dreyma um utanlandsferðir! Það kostar ekkert að láta sig dreyma! Ekki ennþá allavega...
Mamma og pabbi eru núna í þessum skrifuðu orðum úti í Austurríki, þar sem þau eru búin að skíða af sér lappirnar í viku!!! Ohhh...ég er alveg græn af öfund!
Hún sagði við mig að við hefðu örugglega mjög gaman af því að komast þangað, í svona ferð að renna okkur á brettum þarna í brekkunum. Ég sagði...ööööö JÁ!!! Og hef ákveðið að fara strax í það um leið og þau lenda hér á klakanum að sannfæra þau um að fara með okkur í svona skíðaferð...sem fyrst takk!
Jæja...ætla að fara og halda áfram að láta mig dreyma um utanlandsferðir! Það kostar ekkert að láta sig dreyma! Ekki ennþá allavega...
Ađeins einn af hverjum ţúsund Íslendingum getur gert ţetta
05. febrúar 2008 klukkan 23:19
...Hafiði séð NOVA auglýsinguna þar sem stelpurnar sitja í sófanum og önnur er að reyna að bretta upp á augnlokin á sér, á meðan þulur segir "aðeins einn af hverjum þúsund Íslendingum getur gert þetta"?
Ég er ein af þúsund! Ég get gert þetta...vúhú
I feel so special. Það er reyndar alveg merkilegt með fólk sem veit að maður getur þetta, það er alltaf að biðja mann um að gera þetta! Þegar við vorum litlar var Tinna alltaf að biðja mig um að gera þetta, og sérstaklega þegar það var myrkur og við vorum að gista einhversstaðar og svo varð hún geðveikt skelkuð og fannst þetta sjúklega krípí...en bað samt alltaf aftur!
Eins með Grétar, þegar hann komst að því að ég gat þetta (hvernig komst hann eiginlega að því???) þá var hann alltaf að biðja mig að gera þetta...held að hann sé búinn að gleyma þessu núna, vona það allavega!
Ert þú einn af þúsund?